Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 09:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Liverpool horfir til Mónakó og Palace - Frá Man Utd til Juve?
Powerade
Lacroix í baráttunni við Cunha á dögunum.
Lacroix í baráttunni við Cunha á dögunum.
Mynd: EPA
Ugarte gæti farið til Juventus.
Ugarte gæti farið til Juventus.
Mynd: EPA
Rodri á förum?
Rodri á förum?
Mynd: EPA
Enzo Fernandez er á óskalista Real Madrid, Juventus horfir til Manuel Ugarte og Newcastle gæti haldið Sandro Tonali. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Það er BBC sem tekur saman og samantektin er í boði Powerade.



Real Madrid mun horfa til Enzo Fernandez (25) hjá Cheslea eða Adam Wharton (22) hjá Crystal Palace ef félaginu mistekst að landa Rodri (29) frá Man City í sumar. (Mundo Deportivo)

Það mun þurfa allavega 50 milljóna punda tilboð svo City selji Rodri. (Football Insider)

Juventus er með auga á Manuel Ugarte (24) miðjumanni Manchester United. (Gazzettan)

Newcastle gæti haldið Sandro Tonali (25) innan sinna raða í sumar því félög á Ítalíu eiga líklega ekki efni á honum. (Talksport)

Newcastle er að kaupa Ekvadorann Johan Martinez (16) sem er ængmaður Independiente del Valle. (Romano)

Nathan Ake (31) gæti reynt að fara aftur til Chelsea frá Man City. (Sun)

Man Utd og Arsenal eru á meðal félaga sem fylgjast með Ferran Torres (26) sem gæti farið frá Barcelona í sumar. (Fichajes)

Chelsea og Liverpool leiða kapphlaupið um Lamine Camara (22) miðjumann Senegal og Mónakó. (Caught Offside)

Bologna er með augastað á Lorenzo Lucca (25) sem er á láni hjá Nottingham Forest frá Napoli. (Gazzettan)

Newcastle hefur ekki náð að framlengja við Tino Livramento (23) sem opnar dyrnar fyrir hann að fara í sumar. (Football Insider)

Liverpool mun fá mikla samkeppni frá Bayern München um Maxence Lacroix (25) miðvörð Crystal Palace. (Teamtalk)

Julian Alvarez (26) framherji Atletico er aðalskotmark Barcelona í sumar. (Mundo Deportivo)
Slapp
Athugasemdir
banner