Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 11:44
Kári Snorrason
Búast við 2-3 leikmönnum erlendis frá í Val - Fær Lúkas Logi lyklana?
Lúkas Logi Heimisson.
Lúkas Logi Heimisson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Már og Jóhann Skúli.
Jóhann Már og Jóhann Skúli.
Mynd: Kári Snorrason
Ari Leifsson.
Ari Leifsson.
Mynd: KSÍ
Valur hefur einungis bætt þremur leikmönnum við sig á leikmannamarkaðnum í vetur. Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Ingimar Stöle (frá KA), Dagur Orri Garðarsson (frá HK) og Kristófer Dagur Arnarsson (frá Fjölni)

Þeir Jóhann Már Helgason og Jóhann Skúli Jónsson, stuðningsmenn Vals, búast þó við frekari styrkingum fyrir mót.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður Ari Leifsson leikmaður liðsins en spurning er hvenær Kolding er tilbúið að sleppa honum.

Þá hefur jafnframt verið greint frá því að félagið hefur verið með hollenskan bakvörð að nafni Myles Veldman á reynslu og hefur hann spilað æfingaleiki með liðinu.

Vill tvo miðjumenn og Kristófer Inga
„Það er ekki búið að loka markaðnum og ég held að það muni komi einhver styrking inn,“ sagði Jóhann Már og nafni hans Jóhann Skúli tók orðið:

„Það er pottþétt. Ég held að hún komi erlendis frá. Þeir eru með þennan Hollending núna, hann hefur spilað einhverja æfingaleiki. Mér finnst það líklegast að það komi tveir, þrír útlendingar í viðbót,“ sagði Jói.

Hann bætti síðar við að hann vildi sjá tvo miðjumenn bætast við í hópinn ásamt því að sækja Kristófer Inga Kristinsson, framherja Breiðabliks, sem hefur verið orðaður við Val.

„Það var auðvitað planið að sækja Kristófer Inga til að fylla í skarðið hjá Patrick, Hemmi var opinskár með það. Síðan erum við auðvitað komnir með Dag Orra líka.“

Fær Lúkas Logi lyklana?
„Maður hefur heyrt það að margir hafa trú á því að Lúkas Logi muni springa út í sumar. Ég er mjög spenntur að sjá það. Hann var keyptur fyrir nokkrum árum síðan. Hann hefur alltaf bætt sig smám saman.“

„En virðist aldrei fá sénsinn. Ég væri til í að gefa honum lyklana að þessu liði,“ sagði Jói Skúli. „Ég væri til að fá hann í tíuna, hafa hann fremstan á miðjunni. Þá ertu með hann, Tryggva og Jónatan.

Þú þarft að byggja sóknarleikinn í kringum þessa þrjá leikmenn. Ef þeir eiga að vera þrír frammi, þá vantar einhvern beinan framherja, og þá gæti þetta orðið ansi þungt,“
sagði Jói Már að lokum.
Niðurtalningin - Hemmi hefur allt að sanna
Slapp
Athugasemdir
banner