Gianni Infantino, forseti FIFA, segir að Íran muni taka þátt á komandi heimsmeistaramóti og munu leikir liðsins fara fram í Bandaríkjunum samkvæmt áætlun.
Vafi er um þátttöku Írans á mótinu eftir að Bandaríkin gerðu, ásamt Ísrael, loftárásir á landið. Átök ríkja í Mið-Austurlöndum og Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur sagst ekki geta tryggt öryggi leikmanna íranska landsliðsins á HM.

Íranska fótboltasambandið hafði rætt við FIFA um að færa leikina til Mexíkó en sambandið varð ekki að ósk Írana. Þjóðin mætir Nýja Sjálandi og Belgíu í borg englanna, LA, og Egyptalandi í Seattle.
Forseti Mexíkó sagðist tilbúin að taka við leikjunum ef þörf væri á, en Infantino ítrekaði að Íran taki þátt eins og áætlað er og að staðan sé í góðu lagi.