Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 15:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U19: Frábær tilþrif Helga Hafsteins dugðu ekki til gegn Marokkó
Mynd: Álaborg
Marokkó 2 - 1 Ísland

U19 landslið karla tapaði í dag 1-2 gegn Marokkó í síðasta leik sínum á æfingamóti í Portúgal. Spilað var á æfingasvæði portúgalska fótboltasambandsins.

Helgi Hafsteinn Jóhannsson skoraði mark Íslands í leiknum og var það glæsilegt. Hann sólaði leikmenn Marokkó vinstra megin í vítateig þeirra og þrumaði svo boltanum með hægri fæti í fjærhornið. Helgi jafnaði leikinn í 1-1, hann er 17 ára Grindvíkingur sem spilar með Álaborg í Danmörku.

Ísland tapaði öllum þremur leikjum sínum á mótinu, en það mætti einnig Portúgal (0-4 tap) og Bandaríkjunum (1-2 tap).

Sjáðu markið



Slapp
Athugasemdir
banner