England hefur opinberað hóp sinn fyrir leiki gegn Íslandi og Úkraínu í apríl. Evrópumeistararnir eru á leið til Reykjavíkur síðar í þessum mánuði.
Það voru óvænt tíðindi þegar Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Englands, opinberaði hópinn því hin 17 ára gamla Erica Parkinson var valin.
Það voru óvænt tíðindi þegar Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Englands, opinberaði hópinn því hin 17 ára gamla Erica Parkinson var valin.
Parkinson er fædd í Singapúr en hefur búið í Portúgal síðustu árin. Hún spilar þar með Valadares Gaia og er hún lítt þekkt stærð í enska fótboltanum. Hún hefur þó heillað Wiegman með yngri landsliðum Englands.
„Þetta kom henni á óvart, hún var orðlaus," sagði Wiegman um hvernig það var þegar hún tilkynnti Parkinson að hún væri í hópnum.
Beth Mead snýr jafnframt aftur í enska hópinn en hér fyrir neðan má sjá hvernig hann lítur út í heild sinni.
Leikur Íslands og Englands verður 18. apríl næstkomandi.
Sarina Wiegman has named her squad for the April window! ????
— Lionesses (@Lionesses) March 31, 2026
Our @FIFAWWC qualifying journey continues ???? pic.twitter.com/4F9K3KKnVQ


