Myles Lewis-Skelly skaust fram á sjónarsviðið með Arsenal á síðasta tímabili en yfirstandandi tímabil hefur verið erfitt fyrir hann.
Lewis-Skelly hefur ekki verið mikið í liðinu hjá Arsenal á tímabilinu og vilja fréttamiðlar á Englandi meina að hann sé farinn að horfa í kringum sig.
Lewis-Skelly hefur ekki verið mikið í liðinu hjá Arsenal á tímabilinu og vilja fréttamiðlar á Englandi meina að hann sé farinn að horfa í kringum sig.
Daily Mail segir frá því að Manchester United hafi verið - í gegnum umboðsmenn - boðið að kaupa bakvörðinn efnilega.
Lewis-Skelly, sem er 19 ára, hefur verið í aukahlutverki hjá Arsenal á þessu tímabili og hefur misst sæti sitt í enska landsliðshópnum. Thomas Tuchel, þjálfari landsliðsins, sagði nýlega að vinstri bakvörðurinn yrði að spila meira ef hann ætti að eiga möguleika á sæti í HM hópnum.
United ætlar sér að fá inn vinstri bakvörð og er félagið orðað við tvo aðra kosti. Það eru þeir Lewis Hall hjá Newcastle og Nathaniel Brown hjá Eintracht Frankfurt.
Lewis-Skelly skrifaði undir fimm ára samning við Arsenal síðasta sumar.



