Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 17:00
Kári Snorrason
Æfði með FH en semur í Bandaríkjunum
Misei Yoshizawa.
Misei Yoshizawa.
Mynd: Clemson
Japanski miðjumaðurinn Misei Yoshizawa er genginn í raðir Huntsville í Bandaríkjunum. Það er kannski ekki frá sögu færandi nema hvað að Yoshizawa æfði um síðustu mánaðarmót með FH.

Huntsville spilar í C-deild í Bandaríkjunum en er opinbert varalið Nashville sem leikur í MLS-deildinni.

Yoshizawa var áður á mála hjá Clemson-háskólanum og skoraði hann sex mörk í sautján leikjum á síðasta tímabili. Í Clemson var hann liðsfélagi Lúkasar Magna Magnasonar.

Eins og áður sagði æfði sá japanski með FH um síðustu mánaðarmót en fyrir tveimur vikum tilkynnti Fimleikafélagið komu Viktors Nóa Viðarssonar sem er jafnframt miðjumaður.


Slapp
banner