Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   mið 01. apríl 2026 09:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Síðustu tvö löndin tryggðu sig inn á HM - Svona verða riðlarnir
Tuanzebe skoraði sigurmark DR Congo.
Tuanzebe skoraði sigurmark DR Congo.
Mynd: EPA
Aymen Hussein skoraði sigurmark Íran í nótt.
Aymen Hussein skoraði sigurmark Íran í nótt.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Írak vann í nótt nokkuð óvæntan 2-1 sigur á Bólivíu í umspilinu fyrir HM í sumar. Bólivía var sigurstranglegra liðið fyrir leikinn sem spilaður var í Mexíkó. Aymen Hussein skoraði sigurmarkið á 53. mínútu. Bólivía var mun meira með boltann en Írak skapaði sér betri færi í leiknum. 40 ár eru frá því að Írak komst síðast á HM.

Í gærkvöldi hafði Kongó unnið sigur á Jamaíku eftir framlengdan leik. Axel Tuanzebe, fyrrum leikmaður Manchester United og núverandi leikmaður Burnley, skoraði sigurmarkið á 100. mínútu og tryggði Kongó sinn fyrsta farmiða á HM síðan 1974.

HM byrjar 11. júní og má sjá hvernig riðlarnir líta út hér að neðan.

Írak 2 - 1 Bólivía
1-0 Ali Al Hamadi ('10)
1-1 Moises Pniagua ('38)
2-1 Aymen Hussein ('53)

DR Kongó 1 - 0 Jamíka
1-0 Axel Tuanzebe ('100)

Svona verða riðlarnir á HM
A-riðill: Mexíkó, Suður-Kórea, Suður-Afríka, Tékkland

B-riðill: Kanada, Sviss, Katar, Bosnía & Hersegóvína

C-riðill: Brasilía, Marokkó, Skotland, Haítí

D-riðill: Bandaríkin, Ástralía, Paragvæ, Tyrkland

E-riðill: Þýskaland, Ekvador, Fílabeinsströndin, Curacao

F-riðill: Holland, Japan, Túnis, Svíþjóð

G-riðill: Belgía, Íran, Egyptaland, Nýja-Sjáland

H-riðill: Spánn, Úrúgvæ, Sádi-Arabía, Grænhöfðaeyjar

I-riðill: Frakkland, Senegal, Noregur, Írak

J-riðill: Argentína, Austurríki, Alsír, Jórdanía

K-riðill: Portúgal, Kólumbía, Úsbekistan, Kongó

L-riðill: England, Króatía, Panama, Gana
Slapp
banner