Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 13:30
Elvar Geir Magnússon
Valdi sinn HM hóp fyrir England - Hverjir sitja eftir með sárt ennið?
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.
Mynd: EPA
Phil McNulty, yfirmaður fótboltafrétta BBC, valdi sinn landsliðshóp Englendinga fyrir HM. Landsliðsþjálfarinn Thomas Tuchel hefur að ýmsu að huga en McNulty gefur honum kannski einhverjar hugmyndir.

Luke Shaw, Phil Foden, Ollie Watkins, Dominic Solanke, Dominic Calvert-Lewin og Ben White eru meðal leikmanna sem þyrftu að bíta í eplið súra ef McNulty væri landsliðsþjálfari. Ekki er pláss fyrir þá í hópnum.

Svona væri hópurinn hjá McNulty:

Markverðir: Jordan Pickford, Dean Henderson, James Trafford.

Varnarmenn: Reece James, Ezri Konsa, Marc Guehi, Tino Livramento, John Stones, Harry Maguire, Nico O'Reilly, Lewis Hall.

Miðjumenn: Jude Bellingham, Elliot Anderson, Morgan Rogers, Declan Rice, Adam Wharton, Kobbie Mainoo.

Sóknarmenn: Harry Kane, Marcus Rashford, Anthony Gordon, Bukayo Saka, Noni Madueke, Eberechi Eze, Cole Palmer, Danny Welbeck, Jarrod Bowen.
Slapp
banner