Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 14:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Frakkar á topp heimslistans - Ísland niður um sæti
Eimskip
Frakkar eru á toppi heimslistans.
Frakkar eru á toppi heimslistans.
Mynd: EPA
Íslenska liðið fellur niður um eitt sæti.
Íslenska liðið fellur niður um eitt sæti.
Mynd: EPA
FIFA hefur gefið út nýjan heimslista eftir að landsleikjaglugginn kláraðist. Nokkrar breytingar eru við toppinn á lisatnum.

Frakkar fara upp um tvö sæti og eru komnir á toppinn; fara upp fyrir Spán og Argentínu. Frakkar unnu Brasilíu og Kólumbíu í vináttuleikjum í glugganum. Frakkar voru síðast á toppnum eftir að hafa unnið HM 2018.

Portúgal fer upp um eitt sæti í fimmta sætið; upp fyrir Brasilíu. Svíar eru hástökkvararnir á topp 50 en þeir fara upp um fjögur sæti, upp í 38. sætið, en Svíar unnu tvo leiki og komust á HM. Víetnam er hástökkvari listans en liðið fer upp um níu sæti og upp í 99. sætið.

Ísland fellur um eitt sæti eftir jafntefli við Kanada og Haítí, niður í 75. sætið og missir Finnland upp fyrir sig.

Topp 10
Frakkland
Spánn
Argentína
England
Portúgal
Brasilía
Holland
Marokkó
Belgía
Þýskaland
Slapp
banner