Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   mið 01. apríl 2026 10:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Enn og aftur meiddist Frimpong
Mynd: EPA
Jeremie Frimpong þurfti að yfirgefa völlinn þegar Holland mætti Ekvador í vináttulandsleik í gær.

Frimpong hefur verið mikið meiddur á sínu fyrsta tímabili með Liverpool en ef hann missir af leik verður það í fjórða sinn á tímabili þar sem hann er fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Fyrstu þrjú meiðslin voru vegna meiðsla á læri.

Liverpool keypti hollenska bakvörðinn frá Leverkusen en þar lenti hann einungis einu sinni í því að missa af leikjum vegna meiðsla.

Frimpong fór af velli eftir að hafa spilað þrettán mínútur í gær. Óttast er um að um vöðvameiðsli sé að ræða og vr Frimpong sýnilega pirraður þegar hann fór af velli.

Framundan hjá Liverpool er stórleikur gegn Manchester City í bikarnum, barátta um Meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni og einvígi gegn PSG í Meistaradeildinni.

Hinn hægri bakvörður Livepool, Conor Bradley, glímir við alvarleg hnémeiðsli svo líkur eru á því að Dominik Szoboszlai mæti aftur í bakvarðarstöðuna sem hann hefur leyst oft í vetur.
Slapp
banner