Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
   fös 01. október 2021 22:35
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
Nik: Gerðum ekki ráð fyrir að gera mikið í sumar
Nik Anthony Chamberlain þjálfari Þróttar
Nik Anthony Chamberlain þjálfari Þróttar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur tapaði 4-0 gegn Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna. Nik Anthony Chamberlain þjálfari liðsins kom í viðtal eftir leikinn. Þrátt fyrir tap var hann að mörgu leyti ánægður með spilamennsku liðsins og stoltur af stelpunum.

„Mér fannst mikil barátta í leiknum. Þær skora fjögur mörk og ef þú lítur á úrslitin gerir þú ráð fyrir að þær hafi stjórnað leiknum og verið sterkari aðilinn og fengið fullt af færum en það var ekki raunin."

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Þróttur R.

„Við gerðum vel, og náðum að framkvæma 85% af því sem við lögðum upp með. En þegar við gerðum mistök þá nýttu þær sé það. Leikurinn ræðst á litlum smáatriðum, fyrsta markið var vel gert en það er brotið á Kathie, hann hafði dæmt á álíka brot tvisvar í leiknum, og allt í einu erum við að elta bara út af mistökum dómarans og bara lítil smáatriði eins og þetta var munurinn á liðunum í dag."

Þróttarar enduðu í þriðja sæti í Íslandsmótinu og komast svo í úrslitaleikinn í bikarnum, Nik var spurður hvort hann væri ánægður með árangur liðsins í sumar,

„Já, 100%. Við gerðum ekki ráð fyrir að gera mikið í sumar en við höfum bara styrkst og styrkst eftir því sem líður á sumarið og í bikarúrslitum þá vildi ég bara að stelpurnar myndu leggja sig fram og standa sig vel og þær gerðu það, eini munurinn var að þær (Blikar) hafa unnið svo marga titla og þær eru sigurvergarar, fyrir margar af stelpunum er þetta ný reynsla, við vorum í 1. deild fyrir tveimur árum, sumar af þessum stelpum hafa aldrei spilað úrslitaleik áður en þeir lögðu mikla vinnu í þetta í kvöld og vonandi læra þær af því og við getum byggt á þessu."

Nik tók við liðinu árið 2016 og hefur gert góða hluti með liðið síðan þetta hafði hann að segja varðandi árangurinn og framhaldið:

„Miðað við það sem ég sá hér í kvöld þá held ég að ég geti ekki ekki haldið áfram, þetta er frábært og ótrúlegt kvöld hjá Kötturum þeir sungu allan leikinn og þetta er æðislegt."
Slapp
Athugasemdir
banner
banner