Sigurbjörn Hreiðarsson stýrði Haukum gegn Leikni í Lengjubikarnum í kvöld þar sem Ólafur Jóhannesson tók út leikbann. Sigurbjörn var skiljanlega ekki sáttur við að hans lið hafi aðeins skorað eitt mark en Leiknir vann 3-1.
Bæði lið leika í 1. deildinni.
Bæði lið leika í 1. deildinni.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 3 - 1 Haukar
„Við áttum að skora miklu fleiri mörk, við fengum aragrúa af færum. Þessi leikur var furðulegur. Þeir skora nánast úr öllum færum sem þeir komust í í fyrri hálfleik. Það vantaði upp á grimmdina. Þegar við vorum með boltann vorum við flottir en vorum arfaslakir þegar við vorum ekki með hann," sagði Sigurbjörn.
Hann er annars ánægður með standið á hópnum.
„Menn eru að æfa vel og standið er fínt. Við erum nokkuð þéttir. Við erum ekki að ná úrslitum núna en við ætlum að vera reddí þegar Íslandsmótið byrjar. Ég skal lofa þér því að við verðum reddí þegar mótið byrjar."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.























