Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
   þri 04. október 2016 11:39
Elvar Geir Magnússon
Laugardalsvelli
Björn Bergmann: Hef þroskast en horfi ekki á fótbolta
Icelandair
Björn Bergmann mætir til æfingar í Laugardalnum í dag.
Björn Bergmann mætir til æfingar í Laugardalnum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland mætir Finnlandi og Tyrklandi á fimmtudag og sunnudag í undankeppni HM. Þegar hópurinn fyrir þessa leiki var opinberaður voru stærstu tíðindin að Björn Bergmann Sigurðarson, framherji Molde, er í hópnum.

„Það er rosalega gaman að vera kominn til baka. Það er langt síðan ég var hérna síðast, spilaði tvær mínútur í einum leik. Það er rosalega gaman að vera kominn til baka," segir þessi 25 ára Skagamaður sem á einn A-landsleik að baki, þá var hann tvítugur og kom inn á undir lokin í sigri gegn Kýpur.

Hugurinn á öðrum stað
Landsliðsþjálfararnir hafa viljað fá Björn inn í hópinn fyrr og eftirminnilegt var þegar Lars Lagerback sagði á fréttamannafundi að hann hefði ekki svarað símhringingum sínum. En af hverju kom Björn Bergmann ekki fyrr inn í hópinn?

„Hugur minn var á öðrum stað og svo var ég meiddur mikið. Á þessum tíma fannst mér þetta ekki vera fyrir mig. Núna finnst mér ég hafa þroskast og tilbúinn að taka meira á. Eftir langt samtal við Heimi (Hallgrímsson) var ég á því að ég vildi koma aftur."

„Ég er orðinn eldri og þarf ekki að nota tímann í annað. Að fá að koma í landsliðið í eina viku er svo sjálfsagður hlutur finnst mér núna. Hópurinn er frábær og þjálfarateymið frábært."

Stoltur af strákunum á EM
Björn Bergmann er meðvitaður um að það séu meiðsli sóknarlega hjá Íslandi. Kolbeinn Sigþórsson er meiddur og ekki í hópnum og Jón Daði Böðvarsson er tæpur.

„Ég vil fá að spila eins mikið og hægt er, ég vona það besta," segir Björn sem hefur leikið mjög vel með Molde í Noregi en þjálfari hans er Ole Gunnar Solskjær.

Í viðtali fyrir nokkrum árum opnaði Björn Bergmann sig með að hann sé ekki mikill fótboltaáhugamaður og horfi í raun ekki á fótbolta í frítíma sínum. Það varð þó undantekning á því á Evrópumótinu í suamr.

„Það hefur ekki breyst. En þegar landsliðið var á EM þá fylgdist ég með öllum leikjunum. Það var gaman að sjá hvað öllum gekk vel og maður var stoltur af landinu og strákunum."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Björn meðal annars um Solskjær.

Slapp
banner
banner
banner