Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   þri 05. apríl 2022 16:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Marc Wilson í ÍBV (Staðfest) - „Virkar í þrusu standi"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marc Wilson er kominn með félagaskipti til ÍBV og gæti spilað með liðinu í sumar. Wilson lék með Þrótti Vogum í fyrra og eltir Hermann Hreiðarsson, þjálfara ÍBV, til Vestmannaeyja.

Sjá einnig:
Marc Wilson líklega á leið í ÍBV

„Hann kom til landsins á fimmtudaginn og tók létta æfingu með okkur í dag. Mér sýnist hann vera nokkuð heill og virkar í þrusu standi. Það væri gaman ef hann væri „fully fit" og þá erum við að fá í honum gæðaleikmann inn í vörnina," sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, við Fótbolta.net í dag.

Wilson er 34 ára gamall og á feril að baki með Portsmouth, Stoke, Bournemouth, WBA, Sunderland og Bolton. Hann hefur á ferlinum leikið bæði sem varnar- og miðjumaður.

Á sínum tíma lék Wilson 25 landsleiki fyrir Írland. Á síðasta tímabili lék Marc tíu leikir með Þrótti Vogum í 2. deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner