Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 05. maí 2020 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Dembele fær ekki að spila annan deildarleik á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Franski kantmaðurinn Ousmane Dembele getur ekki spilað annan deildarleik fyrir Barcelona á leiktíðinni.

Dembele spilaði fimm deildarleiki áður en hann meiddist illa. Hann átti að vera frá út tímabilið en svo skall kórónaveiran á. Nú er Dembele því nánast klár í slaginn.

Hann er þó ekki gjaldgengur í spænsku deildina vegna þess að Börsungar skráðu Martin Braithwaite í hans stað þegar Daninn var keyptur í febrúar.

Hinn 22 ára Dembele er því aðeins gjaldgengur til að spila þá Meistaradeildarleiki sem eru eftir á leiktíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner