Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 10:35
Elvar Geir Magnússon
Spá því að Viktor muni springa út með vorinu - „Höfum bara séð toppinn af ísjakanum“
Viktor hefur verið á eldi í Meistaradeildinni.
Viktor hefur verið á eldi í Meistaradeildinni.
Mynd: EPA
Í umfjöllun Tipsbladet um það hvaða leikmenn eru líklegir til að springa út með vorinu er Viktor oftast nefndur af öllum.
Í umfjöllun Tipsbladet um það hvaða leikmenn eru líklegir til að springa út með vorinu er Viktor oftast nefndur af öllum.
Mynd: EPA
Ungstirnið Viktor Bjarki Daðason skoraði nýlega sitt þriðja Meistaradeildarmark á tímabilinu, og það gegn Barcelona á Nývangi. Þessi 17 ára leikmaður hefur verið hreinlega magnaður með FC Kaupmannahöfn í keppninni.

Í dönsku úrvalsdeildinni hefur Viktor ekki enn fengið byrjunarliðsleik og á eftir að skora sitt fyrsta mark í Súperligunni.

Íþróttafréttamenn Tipsbladet spá því að það verði fljótt að breytast en keppni í dönsku deildinni fer aftur af stað um helgina.

Í umfjöllun miðilsins um það hvaða leikmenn eru líklegir til að springa út með vorinu er Viktor oftast nefndur af öllum. Lars Gram-Hanssen býst við deildarmörkum frá Viktori og Mikkel Fuhr Nielsen tekur undir það:

„Hann er búinn að skapa sér nafn en ég held að við höfum bara séð toppinn af ísjakanum. Horfandi á meiðslasögu Andreas Cornelius og þar sem Youssoufa Moukoko hefur ekki verið sannfærandi tel ég að Viktor fái mun fleiri tækifæri. Hann á það líka meira en skilið þrátt fyrir að vera bara 17 ára," segir Nielsen í Tipsbladet.
Athugasemdir
banner
banner
banner