Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. apríl 2021 09:00
Victor Pálsson
„De Gea mun klárlega spila fyrir okkur aftur"
Mynd: Getty Images
David de Gea er ekki búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Manchester United að sögn stjóra liðsins, Ole Gunnar Solskjær.

De Gea var ekki í byrjunarliði Man Utd gegn Brighton um helgina í 2-1 sigri en hann hefur ekki varið markið í síðustu leikjum.

Dean Henderson hefur tekið við keflinu af De Gea en hann þykir einn besti markvörður Englands í dag.

Talað er um að De Gea sé að kveðja Man Utd í sumar en miðað við orð Solskjær mun hann verja mark liðsins aftur.

„Ég er með tvo frábæra markmenn, tvo sem eru númer eitt," sagði Solskjær við BBC.

„De Gea fór heim og fór svo í landsliðsverkefni og spilaði því ekki fyrir okkur í um mánuð. Hann mun klárlega spila fyrir okkur aftur."
Athugasemdir
banner
banner