Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 06. nóvember 2019 15:13
Elvar Geir Magnússon
Verða Gummi Tóta og Hólmar samherjar í Búlgaríu?
Guðmundur Þórarinsson.
Guðmundur Þórarinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Levski Sofia í Búlgaríu hefur áhuga á að fá Guðmund Þórarinsson frá Norrköping í Svíþjóð. Hólmar Örn Eyjólfsson er leikmaður Levski.

Guðmundur er eftirsóttur en í sænskum fjölmiðlum er talið að hann hafi leikið sinn síðasta leik fyrir Norrköping.

Djurgården, sem varð meistari í Svíþjóð á dögunum, og hollenska liðið Heerenveen eru síðan sögð vera með hann í sigtinu. Íslendingavaktin greinir frá.

Guðmundur spilaði afar vel fyrir Norrköping á nýafstaðinni leiktíð í sænsku úrvalsdeildinni en liðið hafnaði í fimmta sæti.

Guðmundur og Hólmar Örn léku saman með norska liðinu Rosenborg árið 2016 og voru samherjar í U21 landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner