KR og ÍA eru í æfingaferð á Tenerife en liðin mættust í æfingaleik í dag.
KR var með forystuna í hálfleik en það var Arnór Ingvi Traustason sem skoraði eftir laglega sókn.
KR var með forystuna í hálfleik en það var Arnór Ingvi Traustason sem skoraði eftir laglega sókn.
Sigurður Breki Kárason átti fyrirgjöf og Eiður Gauti Sæbjörnsson átti hælsendingu á Arnór Ingva sem skoraði frá markteig.
Gabríel Snær Gunnarsson jafnaði metin eftir um klukkutíma leik eftir langa sendingu fram völlinn frá Baldvin Berndsen og þar við sat.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir



