Það er toppslagur í ensku úrvalsdeildinni á morgun, sunnudag, þegar Liverpool og Manchester City eigast við.
Liverpool er á toppi deildarinnar og getur komið sér í gríðarlega vænlega stöðu með sigri en Manchester City er sex stigum á eftir.
Liverpool er á toppi deildarinnar og getur komið sér í gríðarlega vænlega stöðu með sigri en Manchester City er sex stigum á eftir.
Markvörðurinn Ederson verður ekki með City í leiknum en hann fór meiddur af velli í Meistaradeildarleiknum gegn Atalanta í vikunni.
Claudio Bravo mun því spila í marki City á morgun.
Hjá Liverpool voru Jordan Henderson og Virgil van Dijk að glíma við smávægileg meiðsli í vikunni en eru klárir í bátana.
Joel Matip, Nathaniel Clyne og Xherdan Shaqiri eru enn á meiðslalistanum.
Á meðfylgjandi mynd má sjá líkleg byrjunarlið fyrir leikinn.
sunnudagur 10. nóvember
14:00 Wolves - Aston Villa (Síminn Sport 2)
14:00 Man Utd - Brighton (Síminn Sport)
16:30 Liverpool - Man City (Síminn Sport)
Athugasemdir