Ndiaye, David, Bastoni, Rice, Barcola, Munoz, Eyong og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 09. nóvember 2025 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segir Mbeumo minna á Salah
Bryan Mbeumo.
Bryan Mbeumo.
Mynd: EPA
Bryan Mbeumo hefur farið frábærlega af stað með Manchester United. Hann var valinn leikmaður mánaðarins fyrir frammistöðu sína í október.

Mbeumo var keyptur til Man Utd frá Brentford síðasta sumar og hefur sýnt það hversu góður hann er í upphafi tímabilsins.

Owen Hargreaves, fyrrum leikmaður Man Utd, segir að Mbeumo minni á Mohamed Salah, framherja Liverpool.

„Hann minnir mig á Mo Salah í kringum teiginn," sagði Hargreaves.

„Þegar hann fær boltann þá veit hann nákvæmlega hvað hann vill gera. Hann er stórkostlegur fótboltamaður og er mjög yfirvegaður."
Athugasemdir
banner
banner