Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 10. júní 2019 21:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
HM kvenna: Buchanan hetja Kanada
 Kadeisha Buchanan skoraði sigurmark Kanada í kvöld.
Kadeisha Buchanan skoraði sigurmark Kanada í kvöld.
Mynd: Getty Images
Kanada 1 - 0 Kamerún
1-0 Kadeisha Buchanan ('45 )

E-riðill hófst í kvöld á HM kvenna í Frakklandi. Kanada mætti Kamerún í Montpellier.

Kanada var rétt tæplega sjötíu prósent með boltann í fyrri hálfleik í leiknum í kvöld og ógnaði talsvert meira heldur en Kamerún sem þó átti sína spretti.

Kanada var fyrir leikinn talið talsvert líklegra liðið til sigurs í kvöld.

Kadeisha Buchanan kom Kanada yfir eftir hornspyrnu frá Janine Beckie á lokamínútu fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik stjórnaði Kanada leiknum án þess þó að skapa sér mörg færi. Kamerún tókst ekki að koma skoti á markið í seinni hálfleik og Kanada byrjar því á sigri.

Holland og Nýja Sjáland mætast á morgun í sama riðli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner