Franska stórveldið Paris Saint-Germain hefur lagt fram 30 milljón evra tilboð í Idrissa Gana Gueye, leikmann Everton á Englandi, en L'Equipe heldur þessu fram.
Senegalski miðjumaðurinn hefur verið eftirsóttur af stóru liðinum í Evrópu síðasta árið en Paris Saint-Germain reyndi einnig við hann í janúarglugganum.
Hann er 29 ára gamall og hefur spilað á Englandi frá árinu 2015 er hann kom til Aston Villa frá Lille. Hann fór svo þaðan til Everton þar sem hann hefur blómstrað.
L'Equipe segir í dag frá því að PSG sé búið að leggja fram 30 milljón evra tilboð í Gueye.
Gueye er staddur í Egyptalandi með senegalska landsliðinu en hann tryggði liðinu sigur á Benín í 8-liða úrslitum Afríkukeppninnar og á því góðan möguleika á að komast í úrslit.
Athugasemdir