Liverpool leiðir kapphlaupið um japanska kantmanninn Takumi Minamino sem er falur fyrir rúmlega 7 milljónir punda vegna söluákvæðis í samningi hans.
Minamino hefur verið meðal bestu leikmanna Red Bull Salzburg undanfarið ár og hafa félög á borð við Manchester United, Borussia Mönchengladbach og AC Milan sýnt honum áhuga, án þess þó að ganga frá kaupunum.
Jürgen Klopp hreifst af Minamino er Salzburg heimsótti Liverpool í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Hann átti aftur góðan leik á þriðjudaginn er Salzburg tapaði á heimavelli gegn Liverpool og munu samningsviðræður hefjast á næstu dögum samkvæmt enskum fjölmiðlum.
Independent og Times greina frá því að Liverpool ætlar að gera allt í sínu valdi til að landa Minamino í janúar. Japaninn er mikils metinn af þjálfarateymi Salzburg sem telur hann vera algjöran lykilmann í frábærum árangri félagsins að undanförnu.
Athugasemdir