Man Utd að styrkja sóknarleik sinn - Frimpong búinn í læknisskoðun hjá Liverpool - Villa hefur áhuga á Kelleher
   sun 13. apríl 2025 21:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Skoraði stórkostlegt jöfnunarmark fyrir Roma gegn Lazio
Mynd: EPA
Lazio 1 - 1 Roma
1-0 Alessio Romagnoli ('47 )
1-1 Matias Soule ('69 )

Lazio og Roma mættust í spennandi leik í Evrópubaráttunni í ítölsku deildinni.

Það var markalaust í hálfleik en Lazio náði forystunni snemma í seinni hálfleik.

Hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Luca Pellegrini úr aukaspyrnu.

Þegar um 20 mínútur voru til loka venjulegs leiktíma jafnaði Roma metin en þar var Matias Soule á ferðinni sem skoraði stórkostlegt mark.

Hann tók viðstöðulaust skot og boltinn fór í slána og inn.

Lazio er í 6. sæti með 56 stig en Roma er í sætinu fyrir neðan með 54 stig.

Sjáðu frábært mark Soule hér
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Napoli 37 23 10 4 57 27 +30 79
2 Inter 37 23 9 5 77 35 +42 78
3 Atalanta 37 22 8 7 76 34 +42 74
4 Juventus 37 17 16 4 55 33 +22 67
5 Roma 37 19 9 9 54 35 +19 66
6 Lazio 37 18 11 8 61 48 +13 65
7 Fiorentina 37 18 8 11 57 39 +18 62
8 Bologna 37 16 14 7 56 44 +12 62
9 Milan 37 17 9 11 59 43 +16 60
10 Como 37 13 10 14 49 50 -1 49
11 Torino 37 10 14 13 39 43 -4 44
12 Udinese 37 12 8 17 39 53 -14 44
13 Genoa 37 9 13 15 34 48 -14 40
14 Cagliari 37 9 9 19 40 54 -14 36
15 Verona 37 9 7 21 32 65 -33 34
16 Parma 37 6 15 16 41 56 -15 33
17 Empoli 37 6 13 18 32 57 -25 31
18 Lecce 37 7 10 20 26 58 -32 31
19 Venezia 37 5 14 18 30 53 -23 29
20 Monza 37 3 9 25 28 67 -39 18
Athugasemdir