Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 13. júní 2021 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Son í myndavélina: Chris, vertur sterkur, ég elska þig
Mynd: Getty Images
Son Heung-min, leikmaður Tottenham, var á skotskónum í morgun þegar Suður-Kórea vann 2-1 sigur á Líbanon í undankeppni HM í Asíu.

Son skoraði sigurmark Suður-Kóreu af vítapunktinum um miðbik seinni hálfleiks.

Son er fyrrum liðsfélagi Christian Eriksen, en þeir spiluðu saman hjá Tottenham.

Eriksen fór í hjartastopp í gær þegar Danmörk spilaði við Finnland á Evrópumótinu. Sem betur fer tókst að bjarga lífi hans með fljótum viðbrögðum leikmanna, dómara og sjúkrastarfsmanna.

Son tileinkaði Eriksen mark sitt. Hann hljóp að myndavél á vellinum og sagði: „Chris, vertu sterkur, ég elska þig."

Son er ekki sá eini sem hefur gert þetta, Romelu Lukaku gerði það einnig.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner