Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. janúar 2020 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
England: Auðvelt fyrir Newcastle - Shrewsbury mætir Liverpool
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Þremur fyrstu viðureignum kvöldsins í enska bikarnum er lokið en einn leikur er enn í gangi.

Newcastle er komið áfram í næstu umferð eftir auðveldan fjögurra marka sigur á C-deildarliði Rochdale. Matthew Longstaff, Miguel Almiron og Joelinton komust allir á blað.

Reading sló þá Blackpool úr leik á meðan Coventry tók Bristol Rovers í kennslustund. Maxime Biamou skoraði tvennu fyrir Coventry.

Shrewsbury og Bristol City stefndu í framlengingu en það voru heimamenn í C-deildarliði Shrewsbury sem höfðu betur þökk sé dramatísku og verðskulduðu sigurmarki undir lokin. Aaron Pierre skoraði þá af um 20 metra færi. Shrewsbury fær Liverpool í heimsókn í næstu umferð.

Að lokum er lítið eftir af viðureign Tottenham og Middlesbrough. Heimamenn í Tottenham hafa þar tveggja marka forystu á lokakaflanum.

Newcastle 4 - 1 Rochdale
1-0 Eoghan O'Connor ('17)
2-0 Matty Longstaff ('20)
3-0 Miguel Almiron ('26)
4-0 Joelinton ('83)
4-1 Jordan Williams ('86)

Blackpool 0 - 2 Reading
0-1 Lucas Boye ('42)
0-2 Jordan Obita ('82)

Coventry 3 - 0 Bristol Rovers
1-0 Maxime Biamou ('4)
2-0 Josh Pask ('50)
3-0 Maxime Biamou ('56)

Shrewsbury 1 - 0 Bristol City
1-0 Aaron Pierre ('88)

Tottenham 2 - 0 Middlesbrough Enn í gangi
1-0 Giovani Lo Celso ('2)
2-0 Erik Lamela ('15)
Athugasemdir
banner
banner
banner