Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 14. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Undanúrslit og Mjólkurbikar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Það er nóg um að vera í íslenska boltanum í dag þar sem styttist í endan á lengsta undirbúningstímabili heims.

Stórleikur dagsins fer fram í hádeginu á Samsungvellinum í Garðabæ þegar Stjarnan tekur á móti KR í undanúrslitum í A-deild Lengjubikarsins.

Það er einnig einn leikur á dagskrá í A-deild kvenna þegar Þróttur R. getur tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri gegn botnliði FHL sem hefur átt hörmulegu gengi að fagna í Lengjubikarnum í vetur. Liðið er án stiga og með -35 í markatölu eftir fjóra leiki.

Það fer einn annar leikur fram í kvennaflokki í dag þegar Fylkir spilar við Völsung í C-deildinni.

Í karlaflokki eiga KÁ og Fjölnir heimaleiki gegn KV og Kormáki/Hvöt í riðli 1 í B-deildinni. Þar eru Fjölnir og KV einu liðin með fullt hús stiga sem stendur, Fjölnir eftir þrjá leiki og KV eftir tvo.

Í riðli 3 eiga Haukar heimaleik við Ými og geta Hafnfirðingar skotist upp í toppsætið fyrir lokaumferðina. Í henni munu þeir spila mögulegan úrslitaleik um toppsætið við Víði Garði.

Í riðli 4 eiga Höttur og KFA heimaleiki á meðan Elliði spilar heimaleik í C-deildinni.

Að lokum spilar Þróttur Vogum gegn Gróttu í Mjólkurbikarnum. Liðin voru saman í 2. deildinni í fyrra og endaði Grótta tveimur stigum fyrir ofan Vogamenn til að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni. Það má því búast við spennandi slag.

Lengjubikar karla - A deild, undanúrslit
12:00 Stjarnan - KR (Samsungvöllurinn)

Lengjubikar kvenna - A deild, riðill 1
13:00 FHL - Þróttur R. (Fjarðabyggðarhöllin)

Lengjubikar karla - B deild, riðill 1
17:00 KÁ - KV (Knatthús Hauka)
18:30 Fjölnir - Kormákur/Hvöt (Egilshöll)

Lengjubikar karla - B deild, riðill 3
10:00 Haukar - Ýmir (Knatthús Hauka)

Lengjubikar karla - B deild, riðill 4
15:00 Höttur - Tindastóll (Rafey-völlurinn)
15:30 KFA - Dalvík/Reynir (Fjarðabyggðarhöllin)

Lengjubikar karla - C deild, riðill 4
13:30 Elliði - Hamrarnir (Fylkisvöllur)

Lengjubikar kvenna - C deild, riðill 1
16:30 Fylkir - Völsungur (tekk VÖLLURINN)

Mjólkurbikar karla
15:00 Þróttur V. - Grótta (HTH völlurinn)
Athugasemdir
banner
banner