Fyrri umferð leikja í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar fer fram í dag og í kvöld og mæta þrjú Íslendingalið til leiks, öll á heimavelli.
Logi Tómasson og félagar í Samsunspor fá Rayo Vallecano í heimsókn frá Spáni, en Rayo er að eiga slakt tímabil í La Liga og er aðeins sex stigum frá fallsæti sem stendur.
Samsunspor er heldur ekki að gera miklar rósir en Logi og félagar sigla lygnan sjó um miðja deild í Tyrklandi og eru án sigurs í fimm síðustu deildarleikjum.
Á sama tíma eiga Gísli Gottskálk Þórðarson og félagar í Lech Poznan heimaleik við Shakhtar Donetsk frá Úkraínu. Gísli hefur ekki verið mikið í byrjunarliði Lech upp á síðkastið en byrjaði þó síðasta leik liðsins í pólsku deildinni og skoraði eina mark sinna manna í 2-1 tapi.
Í kvöld mætir svo Fiorentina til leiks gegn Raków og er þetta annar pólski andstæðingurinn í röð sem ítalska liðið fær. Albert Guðmundsson er búinn að spila 90 mínútur í síðustu tveimur leikjum Fiorentina í deildinni eftir að hafa náð sér af meiðslum síðustu vikuna í febrúar.
AZ Alkmaar spilar þá við Sparta Prag á meðan franska félagið Strasbourg heimsækir Rijeka til Króatíu.
Crystal Palace spilar við AEK Larnaca í kvöld og kíkir Mainz í heimsókn til Sigma Olomuc í Tékklandi.
Leikir dagsins
17:45 Lech Poznan - Shakhtar Donetsk
17:45 AZ Alkmaar - Sparta Prag
17:45 Samsunspor - Rayo Vallecano
17:45 HNK Rijeka - Strasbourg
20:00 Crystal Palace - AEK Larnaca
20:00 Fiorentina - Rakow
20:00 NK Celje - AEK Aþena
20:00 Sigma Olomouc - Mainz
Athugasemdir



