Ívar Örn Árnason var í viðtali hér á Fótbolti.net í síðasta mánuði í kjölfar félagaskipta hans frá KA í Breiðablik. Í viðtalinu tjáði Ívar sig um framkvæmdastjóra KA, Sævar Péturssonar, og runnu ummæli hans í mismunandi farvegi.
Sævar, sem hefur verið framkvæmdastjóri KA í rúm 14 ár, var ekki ánægður með ummælin, en Ívar kallaði eftir því að ábyrgðinni hjá KA yrði dreift; að Sævar þyrfti ekki að taka allar ákvarðanir hjá félaginu. Ummælin má nálgast í hlekknum hér að neðan.
Sævar, sem hefur verið framkvæmdastjóri KA í rúm 14 ár, var ekki ánægður með ummælin, en Ívar kallaði eftir því að ábyrgðinni hjá KA yrði dreift; að Sævar þyrfti ekki að taka allar ákvarðanir hjá félaginu. Ummælin má nálgast í hlekknum hér að neðan.
Þungur hnífur
— saevar petursson (@saevarp) February 26, 2026
Ívar var til viðtals í Íþróttavikunni á 433 og útskýrði ummæli sín betur.
„Ég kannski kom þessu ekki nógu skýrt frá mér, ég var ekki að segja að Sævar væri ekki starfi sínu hæfur, þvert á móti því. KA er mjög heppið að hafa Sævar innanborðs, ekki spurning," segir Ívar í þættinum.
„Það sem ég var að reyna benda á, sem er eitthvað sem ég hef komist betur að eftir að hafa komið í Breiðablik, að það er bara stærra batterí. Nú er Sævar með tvo starfsmenn undir sér, sem eru í fullri vinnu hjá KA, sem ég væri til í að sjá fá meira traust, því í lok dagsins er Sævar að taka flestallar ákvarðanir. Það sem ég var að benda á er að hann ætti að dreifa álaginu, að fleiri væru að taka ákvarðanir. (Ég held að það væri) mjög heilbrigt fyrir Sævar að dreifa álaginu vegna þess að ég er skíthræddur um að maðurinn fari í kulnun ef hann heldur þessu áfram. Þetta er maður sem vinnur 365 daga á árinu og er við símann - þó að það sé erfitt oft að ná í hann - allan sólarhringinn. Ef hann ætlar að vera langlífari þá held ég að það sé mjög heilbrigt fyrir hann og hans heilsu að gera það. Það er enginn vafi um að hann er algjör jarðýta þegar kemur að KA og KA er mjög heppið að hafa Sævar innanborðs."
„Sævar tók þessu sem einhverjum þungum hníf, sem þetta átti alls ekki að vera. Þetta vatt upp á sig og allt í einu var síminn minn á milljón. Ég var ekkert að reyna senda einhver falin skilaboð á milli línanna. Ég skil við KA í mjög góðu og ég vil geta komið aftur til Akureyrar og gengið að opnum dyrum þar í framtíðinni. Við Sævar leystum þetta mál á milli okkar, það varð smá kergja í kringum þessi ummæli, hann var ósáttur við þau, og Alli (Aðalbjörn Hannesson) og Garðar (Garðar Stefán Nikulás Sigurgeirsson), sem vinna með Sævari, voru það líka. Ég skil það alveg, en ég veit að það yrði klúbbnum fyrir bestu ef þeir gætu farið að taka aðeins meiri ábyrgð. Það var aldrei meiningin að skilja í illu við KA, og hvað þá að vera með einhvern hníf á Sævar Pétursson. Það er það síðasta sem ég vil," segir Ívar.
Athugasemdir



