Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   lau 14. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Tekst Atalanta að stríða Inter?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Topplið Inter byrjar daginn í ítalska boltanum á heimavelli gegn Atalanta sem fékk niðurlægingu á heimavelli í miðri viku í Meistaradeildinni.

Inter er með sjö stiga forystu á toppi Serie A þegar tíu umferðir eru eftir en liðið tapaði gegn nágrönnum sínum í AC Milan um síðustu helgi.

Atalanta, sem er einnig í nágreninu, getur freistað þess að setja enn meiri pressu á Inter í titilbaráttunni. Leikmenn Inter verða þó úthvíldir þar sem þeir voru slegnir afar óvænt úr leik af Bodö/Glimt í umspilinu og spiluðu því ekki í miðri viku á meðan Atalanta fékk sex mörk á sig gegn FC Bayern.

Atalanta er í harðri baráttu um evrópusæti og því er mikið undir fyrir lærlinga Raffaele Palladino.

Ítalíumeistarar Napoli eiga svo heimaleik við fallbaráttulið Lecce. Napoli er í góðri stöðu í baráttunni um meistaradeildarsæti á meðan Lecce er þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið. Þórir Jóhann Helgason er samningsbundinn félaginu en hefur ekki komið við sögu síðan í byrjun janúar.

Að lokum tekur Udinese á móti Juventus í áhugaverðum norðanslag. Juve er í baráttu um sæti í Meistaradeildinni á meðan Udinese siglir lygnan sjó, en það er mikið stolt undir í þessari viðureign svarthvítu norðanliðanna.

Leikir dagsins
14:00 Inter - Atalanta
17:00 Napoli - Lecce
19:45 Udinese - Juventus
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 32 24 3 5 75 29 +46 75
2 Napoli 32 20 6 6 48 31 +17 66
3 Milan 32 18 9 5 47 27 +20 63
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 32 16 10 6 56 26 +30 58
6 Roma 32 18 3 11 45 28 +17 57
7 Atalanta 32 14 11 7 44 28 +16 53
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Lazio 32 11 11 10 32 30 +2 44
10 Udinese 32 12 7 13 38 42 -4 43
11 Sassuolo 32 12 6 14 39 43 -4 42
12 Torino 32 11 6 15 37 54 -17 39
13 Genoa 32 9 9 14 38 45 -7 36
14 Parma 32 8 12 12 23 40 -17 36
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 32 8 9 15 33 44 -11 33
17 Cremonese 32 6 9 17 26 47 -21 27
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Verona 32 3 9 20 23 55 -32 18
20 Pisa 32 2 12 18 23 58 -35 18
Slapp
banner