Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   mið 11. mars 2026 17:44
Ívan Guðjón Baldursson
Harry Redknapp býst ekki við að vera ráðinn
Mynd: EPA
Hinn 79 ára gamli Harry Redknapp er meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við þjálfarastarfið hjá Tottenham til bráðabirgða út tímabilið.

Igor Tudor var ráðinn sem bráðabirgðaþjálfari út tímabilið eftir brottrekstur Thomas Frank fyrir mánuði síðan. Liðið hefur staðið sig hörmulega undir hans stjórn og er mikil pressa á honum eftir fjóra tapleiki með markatöluna 5-14.

„Ég hef verið spurður nokkrum sinnum hvort ég myndi taka aftur við Tottenham en ég býst ekki við að það gerist. Auðvitað vil ég taka við starfinu, en ég hef gríðarlega miklar efasemdir um að það muni gerast," sagði Redknapp.

„Þeir eru með allt sem þarf til að forðast fall. Þetta verður erfitt útaf því að hin liðin í fallbaráttunni eru öll að spila vel, en ég hef ekki áhyggjur af þessu. Ég hef ekkert með Spurs að gera í dag.

„Enginn frá félaginu hefur verið í sambandi við mig svo ég býst ekki við að stjórnin sé að íhuga þetta. Ég vona að Spurs bjargi sér frá falli og ég vona að West Ham bjargi sér líka."


Redknapp þjálfaði West Ham í sjö ár og Tottenham í fjögur ár á flottum ferli. Hann var síðast við stjórnvölinn hjá Birmingham fyrir rétt tæpum áratugi síðan.

   06.03.2026 11:10
Fimm stjórar sem gætu tekið við Tottenham núna ef Tudor verður rekinn

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner