Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fim 12. mars 2026 16:05
Elvar Geir Magnússon
Fer Neto í bann fyrir að hrinda boltastráknum?
Neto hrinti boltastrák frá PSG.
Neto hrinti boltastrák frá PSG.
Mynd: X
Neto í leiknum í gær.
Neto í leiknum í gær.
Mynd: EPA
Pedro Neto, leikmaður Chelsea, hrinti boltastrák í 5-2 tapi Chelsea gegn PSG í Meistaradeildinni í gær. Aganefnd UEFA er komið með málið á borð til sín og gæti dæmt Neto í bann fyrir seinni leikinn sem verður á þriðjudag.

Liam Rosenior, stjóri Chelsea, sagði eftir leik að ef einhver frá félaginu hefði ekki hegðað sér með viðeigandi hætti þá vildi hann senda afsökunarbeiðni fyrir hönd Chelsea.

Neto vildi flýta sér að koma boltanum aftur í leik. Boltastrákurinn gerði Neto erfitt fyrir svo portúgalski kantmaðurinn brást við með að ýta honum frá sér og hrifsa boltann af honum.

„Ég vil biðjast afsökunar á þessu atviki. Ég vil biðja boltastrákinn afsökunar, ég er búinn að tala við hann persónulega," sagði Neto eftir lokaflautið.

„Við vorum að tapa leiknum og í öllu tilfinningaflóðinu vildi ég vera fljótur að koma boltanum aftur í leik svo ég ýtti boltastráknum aðeins. Ég er ekki þessi týpa, þetta var gert í hita leiksins og ég vil biðjast afsökunar. Mér líður mjög illa yfir þessu."

„Franskan mín er ekki sérlega góð svo Vitinha (liðsfélagi Neto í portúgalska landsliðinu) kom og hjálpaði mér. Hann sagði við boltastrákinn að ég væri ekki slæmur og að lokum þá hló hann. Ég sagði fyrirgefðu kannski 35 sinnum og gaf honum treyjuna mína."
Athugasemdir
banner
banner