Það eru sjö leikir á dagskrá í Lengjubikarnum í kvöld þar sem er keppt í karla- og kvennaflokki.
Kári og KH eiga heimaleiki í einu leikjum kvöldsins í B-deildinni. Kári spilar við Augnablik í neðri hluta riðils 1 á meðan Víðir reynir að taka toppsætið gegn erfiðum andstæðingum í riðli 3.
Í C-deildinni eru tveir leikir á dagskrá í kvennaflokki. Þar spilar Afturelding við ÍR á sama tíma og Álftanes mætir Augnabliki.
Stokkseyri, Léttir og ÍH eiga að lokum heimaleiki í C-deild karla.
Lengjubikar karla - B deild, riðill 1
20:00 Kári - Augnablik (Akraneshöllin)
Lengjubikar karla - B deild, riðill 3
19:30 KH - Víðir (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Lengjubikar kvenna - C deild, riðill 2
19:00 Afturelding - ÍR (Malbikstöðin að Varmá)
19:00 Álftanes - Augnablik (HTH völlurinn)
Lengjubikar karla - C deild, riðill 2
20:00 Léttir - Skallagrímur (ÍR-völlur)
20:00 ÍH - SR (Skessan)
Lengjubikar karla - C deild, riðill 3
19:30 Stokkseyri - Vængir Júpíters (JÁVERK-völlurinn)
Athugasemdir

