Oliver Glasner þjálfari Crystal Palace hefur verið afar gagnrýninn á kaupstefnu félagsins í fortíðinni, þá sérstaklega eftir sölur á Eberechi Eze og Marc Guéhi á viðkvæmum tímapunktum.
Glasner gekk svo langt í gagnrýni sinni fyrr á árinu að búist var við að hann yrði rekinn hálfu ári fyrir enda samnings síns við félagið, en hann hélt að lokum starfinu eftir fund með stjórnendum.
17.01.2026 21:20
Verður Glasner rekinn frá Palace? - „Aldrei séð neitt þessu líkt“
„Markmiðið okkar í janúarglugganum var að styrkja sóknarlínuna útaf því að við vorum fáliðaðir. Mér líður eins og félagið hafi staðið sig mjög vel í þeim efnum, nýju leikmennirnir passa mjög vel í hópinn og maður sér að þeim líður strax vel hérna," sagði Glasner á fréttamannafundi fyrir leik Palace gegn AEK Larnaca í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar sem fer fram annað kvöld.
Palace nældi í Brennan Johnson, Evann Guessand og Jörgen Strand Larsen í janúarglugganum.
„Við þurftum svo sannarlega á þessum nýju leikmönnum að halda, það sést líka í viðsnúninginum á úrslitum."
Palace vann ekki einn einasta leik frá 14. desember til 8. febrúar en liðið er sex stigum frá baráttu um evrópusæti í ensku úrvalsdeildinni, auk þess að vera meðal sigurstranglegustu liða Sambandsdeildarinnar.
„Við spilum þrjá leiki í næstu viku og munum þurfa á nýju strákunum að halda."
Palace mætir Leeds inn á milli leikjanna við AEK áður fyrsta landsleikjahlé ársins ber að garði.
Athugasemdir



