FC Bayern gjörsamlega rúllaði yfir Atalanta er liðin mættust í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.
Bayern er búið að gera út um viðureignina fyrir seinni leik liðanna sem fer fram í München, en lokatölur í Bergamó voru 1-6.
Tvö meiðsli skyggðu á magnaða frammistöðu Bayern þegar lykilmennirnir Alphonso Davies og Jamal Musiala, sem hafa báðir verið að glíma við erfið meiðsli á tímabilinu, urðu fyrir hnjaski.
Davies og Musiala byrjuðu leikinn á bekknum og var þeim skipt inná í hálfleik þegar staðan var þegar orðin 0-3.
Davies fór meiddur af velli tæplega hálftíma eftir innkomuna af bekknum en Musiala kláraði leikinn.
Báðir þurfa þeir að gangast undir rannsóknir áður en hægt er að segja til um hversu alvarleg meiðslin eru, en við fyrstu sýn ættu þau ekki að vera alvarleg.
Davies er að glíma við vöðvameiðsli á meðan Musiala fann fyrir sársauka í vinstri ökklanum sem hefur haldið honum frá keppni stærsta hluta tímabils.
Athugasemdir



