Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmenn bauluðu á Nottingham Forest - „Rigningin var á móti okkur"
Mynd: EPA
Nottingham Forest er án sigurs í síðustu fimm leikjum í öllum keppnum en liðið tapaði í fyrri leiknum gegn Midtjylland í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á heimavelli í gær.

Forest skapaði fullt af færum en Elías Rafn Ólafsson átti frábæran leik í marki MIdtjyllland. Gue-Sung Cho tryggði Midtjylland sigurinn með marki undir lokin, þvert gegn gangi leiksins.

Stuðningsmenn Forest voru alls ekki sáttir og bauluðu á liðið í lokin. það byrjaði að hellirigna snemma í seinni hálfleik og Vitor Pereira, stjóri Forest, sagði að það hafi haft mikil áhrif.

„Meira að segja var rigningin á móti okkur. Við vorum að spila mjög vel og skapa mikið en þá kom rigningin. Það var erfitt að spila í rigningunni. Við þurfum að halda góðum anda og hugarfari til að vinna, nú er tími til að ná okkur andlega," sagði Pereira.
Athugasemdir
banner
banner
banner