Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fim 12. mars 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rosenior: Erfitt en ekki ómögulegt
Mynd: EPA
Liam Rosenior þjálfari Chelsea var svekktur eftir 5-2 tap á útivelli gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Chelsea sýndi flotta frammistöðu en PSG nýtti öll færin sín í jöfnum leik. Filip Jörgensen átti slæman leik á milli stanganna og þykir ljóst að félagið muni leggja mikið púður í að fá inn nýjan markvörð í sumar.

„Þessi úrslit eru mikil vonbrigði miðað við hversu ánægður ég var með spilamennskuna stærsta hluta leiksins. Síðustu 15-20 mínúturnar voru sturlaðar, við brugðumst ekki rétt við. Við verðum að læra að halda okkur rólegum og yfirveguðum þegar við lendum í bakslagi. Það er það sem brást okkur í kvöld," sagði Rosenior, sem var svo spurður út í slæm mistök Jörgensen sem gaf PSG þriðja markið með slæmri sendingu í síðari hálfleik.

„Það er sárt að tapa 5-2 þegar við spiluðum mjög vel í 75 mínútur. Leikmenn gera mistök, Filip er ekki sá fyrsti til að gera mistök í fótboltaleik. Þetta er partur af leiknum. Á þessum tímapunkti var staðan 2-2 og við komumst hársbreidd frá því að taka forystuna áður en við fengum markið á okkur.

„Hver einasti leikstíll í fótbolta býður upp á hinar ýmsu hættur og það er mín ákvörðun að spila boltanum út frá markverði. Þetta er synd en svona getur gerst. Við öðlumst meiri stjórn á leiknum þegar við spilum okkur úr vörninni.

„Vandamálið í kvöld er að einhvern veginn þá fengum við fimm mörk á okkur þegar þeir voru með 0,8 í xG. Það er mjög erfitt að kyngja því og við höfum ekki mikinn tíma til að gera það. Við hoppum aftur í flugvélina og undirbúum okkur fyrir mikilvæga leiki gegn Newcastle og PSG.

„Þetta verða mjög erfiðir leikir. Það verður sérstaklega erfitt að reyna að vinna einvígið gegn PSG, þó það sé ekki ómögulegt."


Chelsea er í harðri baráttu um meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner