Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fim 12. mars 2026 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tekur Keane við Celtic?
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Robbie Keane er sagður líklegastur til að taka við sem stjóri Celtic í Skotlandi. The Guardian greinir frá.

Hann mun þá taka við af Martin O'Neill sem tók við til bráðabirgða eftir að Brendan Rodgers sagðii af sér fyrr á tímabilinu.

Keane er mjög eftirsóttur en hann hefur verið orðaður við Tottenham. Hann er stjórii Ferencvaros í Ungverjalandi en liðið vann deildina undir hans stjórn á síðasta tímabili og er á toppnum sem stendur.

Keane er 45 ára en hann er fyrrum framherji Tottenham. Þá spilaði hann á láni hjá Celtic árið 2010 og skoraði 16 mörk í 19 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner