Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fim 12. mars 2026 15:04
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir 
Útskýrir brotthvarf Balde - „Þetta er bara hræðilegt“
Sigurður Heiðar Höskuldsson og Ibrahima Balde eftir að Þór komst upp.
Sigurður Heiðar Höskuldsson og Ibrahima Balde eftir að Þór komst upp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er klárt í okkar bókum að leikmaðurinn stjórnar ekki hvar hann spilar á vellinum“
„Það er klárt í okkar bókum að leikmaðurinn stjórnar ekki hvar hann spilar á vellinum“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þau óvæntu tíðindi urðu í vikunni að Ibrahima Balde yfirgaf Þór og gekk aftur í raðir Vestra þar sem hann spilaði 2023 og 2024. Balde var í liði ársins í Lengjudeildinni í fyrra enda lykilmaður í því að Þór tryggði sér sæti í Bestu deildinni.

Balde er þrítugur Senegali sem spilaði sem sóknarsinnaður miðjumaður á síðasta tímabili.

Fótbolti.net greindi frá því að það hafi verið ágreiningur um hvar Balde ætti að spila á vellinum. Hann spilað sem fremsti maður á undirbúningstímabilinu hjá Þór og var hann ekki hrifinn af því.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, staðfesti þetta svo í viðtali við Val Pál Eiríksson á Vísi.

„Það var ágreiningur um hvar hann ætti að spila á vellinum. Hann vildi ekki spila þá stöðu sem við vildum að hann myndi spila. Það er klárt í okkar bókum að leikmaðurinn stjórnar ekki hvar hann spilar á vellinum," segir Siggi Höskulds.

„Það er eitthvað sem þjálfararnir ráða. Okkur fannst það ekki passa inn í okkar hluti að einn leikmaður væri ekki að fylgja því sem liðið væri að gera. Okkur fannst hann því ekki nægilega tengdur verkefninu. Við ákváðum því að staldra við þar og kveðja hann.“

Er ekki leiðinlegt að sjá á eftir lykilmanni?

„Þetta er bara hræðilegt. Ibra er bara dýrkaður og dáður hér, svona fan favorite eins og maður segir. Vel liðinn í hópnum og allt svoleiðis en þessi ákvörðun er algjörlega tekin með liðið í forgrunni. Við gátum ekki verið að láta hann stjórna því hvernig við myndum spila eða gera hlutina."

Í viðtalinu við Vísi segir Sigurður að Þórsarar ætli að fá inn sóknarmann, níu, áður en keppni hefst í Bestu deildinni.
Athugasemdir
banner
banner