Manchester United vonast til að fá um 70 milljónir punda í kassann fyrir sumarið eftir fínar frammistöður Rasmus Höjlund á láni hjá Napoli og Marcus Rashford hjá Barcelona.
Napoli greiddi um 5 milljónir punda til að fá Höjlund lánaðan frá Man Utd, með 38 milljóna árangurstengdri kaupskyldu.
Kaupskyldan virkjast ef Höjlund spilar helming leikja Napoli og liðið nær meistaradeildarsæti í Serie A, sem virðist vera afar líklegt á þessum tímapunkti. Höjlund, 23 ára, er kominn með 9 mörk í 24 deildarleikjum og situr Napoli í þriðja sæti - fimm stigum fyrir ofan evrópudeildarsætin.
Lánssamningur Rashford til Barcelona er einfaldur lánssamningur með kaupákvæði sem hljóðar upp á 26 milljónir punda.
Rashford, sem tók á sig launalækkun til að fara til Barca á láni, byrjaði mjög vel á Spáni og var öflugur á fyrri hluta tímabils en byrjaði að dala í desember.
Hann hefur komið með beinum hætti að 23 mörkum í 38 leikjum í öllum keppnum sem er aðeins meira heldur en hjá Höjlund. Daninn hefur komið að 17 mörkum í 35 leikjum.
Milljónirnar koma ekki allar beint í kassann þar sem bæði Ítalíumeistararnir og Spánarmeistararnir krefjast þess að fá að dreifa greiðslunum.
05.03.2026 18:30
Lewandowski: Rashford hefur allt
Athugasemdir





