Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 15:42
Elvar Geir Magnússon
Jimenez syrgir föður sinn
Mynd: EPA
Mexíkóski sóknarmaðurinn Raul Jimenez æfir ekki með Fulham í dag en hann fékk leyfi til að syrgja föður sinn. Óvíst er með þátttöku hans í leiknum gegn Nottingham Forest á sunnudaginn.

Marco Silva, stjóri Fulham, sendi samúðarkveðjur til Jimenez og fjölskyldu á fréttamannafundi í morgun.

Hann og faðir hans, Raul Jimenez Vega, voru mjög nánir. Pabbi hans fylgdi honum hvert fótmál og veitti honum ráðgjöf.

Hann greindist með krabbamein í fyrra og er nú látinn, 62 ára.



Athugasemdir
banner