Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fös 13. mars 2026 10:14
Elvar Geir Magnússon
Slot: Vondur kokteill sem gerir alla leiki erfiða
Arne Slot kvartar í fjórða dómaranum í Istanbúl.
Arne Slot kvartar í fjórða dómaranum í Istanbúl.
Mynd: EPA
Úr leik Galatasaray og Liverpool.
Úr leik Galatasaray og Liverpool.
Mynd: EPA
Óstöðugleiki hefur einkennt Liverpool á þessu tímabili og Arne Slot, stjóri liðsins, segir það vondan ávana hjá félaginu hversu stór hluti af þeim færum sem andstæðingarnir skapa enda með marki.

„Það er vondur kokteill að fá á sig mörk úr svona fáum sköpuðum færum. Ef við getum ekki bætt það þá verður hver einn og einasti leikur erfiður," segir Slot.

Liverpool er í sjötta sæti og mætir Tottenham, sem hefur verið í tómu tjóni, á sunnudaginn. Á miðvikudag er svo komið að seinni leiknum gegn Galatasaray en tyrkneska liðið leiðir einvígið 1-0.

„Ráin hjá Liverpool er alltaf há, hefur alltaf verið há og verður það áfram. Við erum toppfélag og það eiga að vera miklar kröfur frá fólkinu í kringum okkur."

„Við náðum að afreka það í fyrra að vinna deildina, við vorum líka nálægt því að vinna deildabikarinn en töpuðum fyrir Newcastle í úrslitaleiknum. Við náum ekki að vinna deildina aftur á þessu tímabili en erum enn með í Meistaradeildinni og FA-bikarnum."

„Það sem ég vil sjá er að hver einasti leikmaður nái öllu frá sér á hverri einustu æfingu og hverjum einasta leik út tímabilið."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner
banner