Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fös 13. mars 2026 10:10
Elvar Geir Magnússon
Alisson æfir í dag en óvíst með Tottenham leikinn
Alisson spilaði ekki í tapinu í Istanbúl.
Alisson spilaði ekki í tapinu í Istanbúl.
Mynd: EPA
Brasilíski markvörðurinn Alisson er væntanlegur aftur til æfinga með Liverpool í dag en hann spilaði ekki í tapinu gegn Galatasaray þar sem hann varð fyrir minniháttar meiðslum á æfingu.

„Hann hefur veirð með sjúkraþjálfurum hingað til. Við erum að æfa í dag og það er búist við honum á æfinguna, það er þó ekki 100%" segir Arne Slot, stjóri Liverpool.

Liverpool fær Tottenham í heimsókn á sunnudaginn en óvissa er með þátttöku hans í þeim leik.

„Hann fann fyrir óþægindum í vöðva þegar hann var að senda boltann á æfingu, en eftir skoðun kom í ljós að þetta var minniháttar. Vonandi verður hann með á sunnudag en ef ekki þá tel ég að hann verði örugglega klár í seinni leikinn gegn Galatasaray (á miðvikudaginn)."

Giorgi Mamardashvili varamarkvörður Liverpool varði markið í Istanbúl. Galatasaray vann fyrri leikinn gegn Liverpool 1-0 en sá seinni verður á Anfield. Federico Chiesa var ekki í hóp í fyrri leiknum vegna veikinda en hann æfir í dag.

Slot mætti á fréttamannafund í morgun og var spurður út í líkamlegt ástand sóknarmannsins Alexander Isak: „Hann er enn í endurhæfingarferli og er ekki byrjaður að æfa með liðinu."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner