Brotist var inn á heimili landsliðsmannsins Alberts Guðmundssonar í Flórens á Ítalíu í gærkvöldi.
Albert var á sama tíma að spila leik í Sambandsdeildinni gegn Rakow í gærkvöldi og reyndist hetja Fiorentina er hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
Albert var á sama tíma að spila leik í Sambandsdeildinni gegn Rakow í gærkvöldi og reyndist hetja Fiorentina er hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
Albert greinir sjálfur frá innbrotinu á Instagram síðu sinni og skrifar: „Brotist var inn á heimilið mitt í gær og var þónokkrum verðmætum stolið, þar af nokkrum persónulegum hlutum.
Ef einhver hefur einhverjar upplýsingar um þá sem eiga í hlut hafið samband við mig. Verðlaun eru í boði fyrir upplýsingar sem leiða til þess að stolnu munirnir finnist aftur.“
Athugasemdir


