Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 13:42
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir 
David James markvarðaþjálfari Vals um þessar mundir
David James í leik með ÍBV á Híðarenda.
David James í leik með ÍBV á Híðarenda.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
David James, fyrrum markvörður enska landsliðsins og ÍBV, er að leysa af sem markvarðaþjálfari Vals um þessar mundir.

Hann og Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, eru góðir vinir og segir Vísir frá því að James sé að gera honum greiða.

Markvarðaþjálfari Vals, Daninn Emil Larsen sem var ráðinn í vetur, er í æfingaferð með kvennaliði félagsins og leysir James hann af með karlaliðið á meðan.

James lék eitt sumar, árið 2013, í marki ÍBV, og þá voru hann og Hermann saman hjá Kerala Blasters á Indlandi og Portsmouth á Englandi.

James lék einnig með Liverpool, Manchester City og fleiri liðum á ferlinum.
Athugasemdir
banner