Liverpool hefur ráðið nýjan þjálfara til að stýra kvennaliði félagsins. Sá heitir Matt Beard og er ekki að fara að þjálfa hjá Liverpool í fyrsta sinn.
Beard, sem er 43 ára, hefur undanfarna mánuði stýrt Bristol City en hann náði ekki að bjarga þeim frá falli úr ensku úrvalsdeildinni.
Hann stýrði Liverpool frá 2012 til 2015 og vann ensku úrvalsdeildina tvisvar með félaginu. Síðan þá hefur leiðin legið niður á við og hafnaði liðið í þriðja sæti næst efstu deildar á þessari leiktíð.
Beard segir að Liverpool eigi stóran stað í hjarta sínu og hann sé spenntur fyrir því að snúa aftur.
Hann fær það verkefni núna að koma kvennaliði Liverpool aftur á þann stað þar sem það var þegar hann stýrði því síðast.
🚨NEWS: Matt Beard has been announced as Liverpool manager after his time with Bristol City as interim, came to an end. pic.twitter.com/ImzENjFEh5
— Her Football Hub (@HerFootballHub) May 13, 2021
Athugasemdir