Jurgen Klopp er skemmtilegur karakter og hann er yfirleitt hress eftir sigurleiki, hvað þá þegar hann er nýbúinn að vinna titil.
Liverpool vann í kvöld Ofurbikar Evrópu þar sem sigurlið Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð mætti Chelsea, sigurliði Evrópudeildarinnar frá síðustu leiktíð.
Staðan var 2-2 eftir framlengingu og því var farið í vítaspyrnukeppni. Þar var Adrian, nýr markvörður Liverpool, sem var fenginn á frjálsri sölu, hetjan. Adrian hefur leikið með West Ham síðustu ár og var hann varamarkvörður þar á síðasta tímabili.
Eftir leikinn í kvöld tók Klopp skemmtilegt öskur sem minnti á Rocky Balboa í samnefndum kvikmyndum. Eiginkona Rocky í þeim myndum hét Adrian.
Eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í júní byrjaði Klopp að syngja í viðtali.
ADRIAAAAAAAAAAAN!! #LFC #SuperCup #LIVCHE pic.twitter.com/ig3fu78Qkd
— Kop Magazine (@TheKopMagazine) August 14, 2019
Athugasemdir