Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fim 15. janúar 2026 11:45
Elvar Geir Magnússon
Ratcliffe og Glazer á æfingasvæðinu til að sýna Carrick stuðning
Michael Carrick stýrir æfingu hjá Manchester United.
Michael Carrick stýrir æfingu hjá Manchester United.
Mynd: Man Utd
Sir Jim Ratcliffe og að minnsta kosti einn einstaklingur úr Glazer fjölskyldunni eru viðstaddir æfingu Manchester United í dag til að sýna bráðabirgðastjóranum Michael Carrick stuðning sinn.

Manchester United býr sig undir grannaslag gegn Manchester City sem fram fer á laugardag.

Stjórnarfundur félagsins átti að fara fram á öðrum stað en var færður á Carrington æfingasvæðið svo hægt væri að ræða við Carrick í aðdraganda fyrsta leiks hans.

Glazer systkinin sex og Ratcliffe eru meirihlutaeigendur í félaginu. Samkvæmt Guardian eru Avram og Joel Glazer líklega báðir á æfingasvæðinu, allavega annar þeirra.

Þetta er aðeins önnur æfing Carrick síðan hann tók við sem bráðabirgðastjóri en hann sagði í viðtali að hann væri spenntur fyrir komandi leik.

„Stóru leikirnir, þessir mikilvægu, við lifum fyrir þá," sagði Carrick í viðtali við fjölmiðladeild félagsins.

United er úr leik í báðum bikarkeppnunum og ekki með í Evrópu svo Carrick mun aðeins stýra sautján leikjum. United er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 26 17 6 3 50 18 +32 57
2 Man City 26 16 5 5 54 24 +30 53
3 Aston Villa 26 15 5 6 37 27 +10 50
4 Man Utd 26 12 9 5 47 37 +10 45
5 Chelsea 26 12 8 6 47 30 +17 44
6 Liverpool 26 12 6 8 41 35 +6 42
7 Brentford 26 12 4 10 40 35 +5 40
8 Everton 26 10 7 9 29 30 -1 37
9 Bournemouth 26 9 10 7 43 45 -2 37
10 Newcastle 26 10 6 10 37 37 0 36
11 Sunderland 26 9 9 8 27 30 -3 36
12 Fulham 26 10 4 12 35 40 -5 34
13 Crystal Palace 26 8 8 10 28 32 -4 32
14 Brighton 26 7 10 9 34 34 0 31
15 Leeds 26 7 9 10 36 45 -9 30
16 Tottenham 26 7 8 11 36 37 -1 29
17 Nott. Forest 26 7 6 13 25 38 -13 27
18 West Ham 26 6 6 14 32 49 -17 24
19 Burnley 26 4 6 16 28 51 -23 18
20 Wolves 26 1 6 19 16 48 -32 9
Athugasemdir
banner
banner